Friday, December 21, 2012

4. SKAMM, SKAMM RONALDINHO

Komið að myndbandi dagsins en það sýnir hinn brasilíska Ronaldinho fá frekar óvænt, beint rautt spjald fyrir ja... ansi litlar sakir. Sem betur fer áttaði dómarinn sig þó strax á klúðrinu og leiðrétti þessi vandræðalegu mistök sín. En sjón er sögu ríkari...
 
 

Saturday, December 15, 2012

3. AÐEINS UM OKKUR


Snillingarnir hennar mömmu!
Það er kannski rétt að segja aðeins frá okkur aðstandendunum sem höldum utan um þessa síðu. Við heitum Tumi og Garðar og erum stjúpfeðgar en fótboltamamman á heimilinu sýnir verkefni okkar fullan skilning og eldar reglulega fyrir okkur góðan kvöldmat. Þannig stuðlar hún að hollu líferni okkar sem, eins og auðvitað allir vita, er ákaflega mikilvægt fyrir alla þá er vilja tuða á netmiðlum um fótbolta á heilbrigðan og eðlilegan hátt. Við spörkum reglulega í hvorn annan niðrá velli, horfum töluvert á leiki saman í sjónvarpinu eða á Netinu og spilum Fótboltaspilið með morgunmatnum um helgar og þá iðulega með frekar besserwissku ívafi. Við erum auðvitað báðir forfallnir fótboltafíklar en erum samt tiltölulega heilbrigðir að flestu öðru leyti.

Tumi eins og hann gerist
bestur
Tumi heitir sko fullu nafni Benjamín Tumi Bergsveinsson og er hvorki meira né minna en 10 ára gamall. Hann er afburða fróður um knattspyrnu og tæknilega séð er hann eiginlega gangandi alfræðibók um fótbolta.  Hugsanlega má þó líta á að vefur Wikipedia sé lítillega fullkomnari en það er þá eingöngu vegna hve margir koma að honum. Tumi veit skónúmerið hjá Domenico Berardi sem spilar með Sassuolo í Seríu B á Ítalíu, getur sagt til um hvað Neymar lék margar mínútur með 6. flokki  Santos og svo veit hann meira að segja hvar HM 2026 verður haldið - jafnvel þó það sé ekki einu sinni komið til umræðu hjá FIFA.  Tumi æfir og spilar sjálfur með 5. flokki Þróttar (í karlaflokki) og er hörkuduglegur varnarmaður. Hann hefur ágæta tækni og spilar vel frá sér boltanum og á það jafnvel til að bregða sér í sóknina til að klína eins og einum og einum bolta upp í sammann. Það gerir hann þá helst gegn ÍBV. Hann heldur með Chelsea í enska boltanum, finnst Messi allt í læ en Neymar betri og á FIFA13 í PlayStation. Tumi er í Langholtsskóla, stefnir á doktorsnám í innanfótaspyrnum, er bindindismaður á vín og tóbak, ógiftur og barnlaus.


Og svo Garðar greyið!
Garðar er hins vegar fullu nafni Jónsson og er aðeins eldri en Tumi (annað væri nú óeðlilegt fyrir stjúppabba) og er því eðli máli samkvæmt í sambúð með móður Tuma! Hann veit ekkert mjög mikið um fótbolta en er ágætlega nothæfur við að segja frá því sem Tumi vill hafa á síðunni. Sökum langvarandi og ólæknandi óminnisleysis, frá dögum Enska boltanum á laugardögum hjá Bjarna Fel, veit hann þó hverjir Paul Mariner, Gary Shaw og Mike Hazard voru (og sjálfsagt eru) en gæti líklega ekki fyrir sitt litla líf sagt hverjir urðu Íslandsmeistarar í fótbolta árið 2012. Oft þykist hann samt vita meira um knattspyrnu en hann í raun gerir. Sjálfur (er hann álfur!) spilaði Garðar líka aðeins fótbolta í gamla daga og þótti nokkuð liðtækur með boltann en samt var hann alltaf betri án hans! Garðar hefur haldið með Tottenham í þeim enska í á fjórða tug ára, á fullan kassa af úrklippum af Ásgeiri Sigurvinssyni og á bæði fótboltatreyju frá Fortuna Dusseldorf og Færeyska landsliðinu.

Monday, December 10, 2012

2. HUNDUR Á HM

Strax komnir í færslu númer tvö í Boltabullinu okkar og það er bara alls ekkert svo illa af sér vikið fyrir menn á okkar aldri.
 
Jimmy Greaves er vinstra megin á myndinni
 Alla vega... hér er myndband frá HM í Chile, árið 1962, þar sem Brasilía og England mættust í 8-liða úrslitunum keppninnar. Þessi lönd voru auðvitað á meðal þeirra bestu í heiminum á þessum árum og Brasilíumenn unnu mótið í þetta sinn og höfðu reyndar einnig unnið keppnina á undan í Svíþjóð árið 1958. Englendingar sigruðu svo á heimavelli í sitt eina skipti árið 1966 en Brasilíumenn endurheimtu titilinn á sínum heimavelli árið 1970 og það lið er af mörgum talið eitt besta knattspyrnulið sögunnar.

Leikur liðanna árið 1962 var nokkuð spennandi, enda höfðu bæði löndin á að skipa mörgum frábærum leikmönnum. Pelé var reyndar meira og minna meiddur alla keppnina í Chile og spilaði lítið þar en í staðinn fékk Garrincha sitt tækifæri til að sýna hæfileika sína fyrir Brasilíu. Hann skoraði til dæmis tvö af mörkum sinna manna í leiknum sem Brasilíumenn unnu með þremur mörkum gegn einu. Hjá Englendingunum voru einnig margar kempur sem áttu seinna eftir að sýna betur hvað í þá var spunnið og má þar helst nefna þá Bobbyana Charlton og Moore og Tottenham goðsögnina Jimmy Greaves en hann sýndi einstaka knattspyrnuhæfileika í leiknum eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan.

 
Ef vel er gáð sést hvar Greaves hristir á sér hendurnar eftir viðskipti sín við hundinn og lengi vel voru einhverjar vangaveltur um að kvikindið hefði pissað á snillinginn. Ef svo er, má fastlega reikna með að þetta sé í eina skiptið í sögu Heimsmeistaramótsins þar sem leikmaður einhvers liðsins spilar angandi af hundahlandi. Eða að minnsta kosti í 8-liða úrslitum keppninnar!

Saturday, December 8, 2012

1. OK. BEST AÐ BYRJA Á BYRJUNINNI



Við tökum það auðvitað skýrt fram að allt efni heimasíðunnar
okkar er að sjálfsögðu á háalvarlegum og dramatískum nótum!

Sko, hér ætlum við snillingarnir Tumi og Garðar að halda uppi heimasíðu sem fjallar um fótbolta á allan þann mögulega og ómögulega hátt sem unnt er. Við ætlum ekki að hafa þetta sem einhverja fótboltafrétta- eða aðdáendasíðu, sem fylgir einhverju ákveðnu liði (ÁFRAM TOTTENHAM!), heldur viljum við frekar fjalla um fótbolta á annan hátt en fólk á að venjast. Auðvitað eigum við báðir okkar uppáhaldslið og verðum að sjálfsögðu duglegir við að fjalla um þau á sem eðlilegastan hátt en ef nauðsyn ber til þá munum við  reyndar einnig leitast við að tala illa um önnur lið eftir atvikum og þörfum. Við eigum þó ekki von á að vera með einhvern óhróður enda við báðir alveg einstaklega friðelskandi og vel uppaldir einstaklingar. Þannig eigum við enn svolítið langt í land með að geta kallast alvöru boltabullur en komum til með að eiga auðveldara með að stunda einhvers konar boltabull, - þ.e. meira svona bull um boltann!

Við eigum líklega eftir að vera svolítið á gömlu nótunum og verðum duglegir við að leita uppi og birta ýmislegt áhugavert sem gerðist í fótbolta fyrir langa löngu síðan en svo verðum við örugglega líka með ýmsar gjörsamlega gagnslausar upplýsingar, fánýta tölfræði og koma með okkar eigin skoðanir á forljótum fótboltaköllum eða búningum, svo dæmi séu tekin. Það er ekki beint stefna okkar að vera neitt mjög gáfulegir í skrifum og þá verðum við vonandi einnig voðalega duglegir við að henda inn vídeóum af hinum og þessum atvikum úr heimi fótboltans. Við reiknum ekki með að vera neitt mjög reglulegir (kannski 1 til 2 færslur á ári) í skrifum okkar á þessari heimasíðu og sjálfsagt á hún eftir að liggja niðri á löngum köflum sökum áhugaleysis og ótímabærs tímaskorts okkar félaganna - eða við teljum okkur alla vega trú um hið síðarnefnda!

En alla vega... best að fara og leggja sig! Zzzzzzzzzzzzzzzzzzz...