Sunday, January 31, 2016

97. TALIÐ NIÐUR MEÐ DANMÖRKU

Nú styttist óðum í EM og Knattspyrnusamband Ísland kappkostar við að leggja lokafrágang á undirbúning íslenska liðsins fyrir sumarið. Öll sú vinna kostar mikla fjármuni og skipulagningu en eitt af mikilvægustu atriðum þess undirbúnings snýst um að finna hentuga mótherja í æfingaleikjum fyrir mótið og er nú loksins búið að klára það verkefni endanlega. Nú þegar hafa reyndar verið spilaðir tveir landsleikir, gegn Finnlandi og Sameinuðu Arabísku furstadæmunum, þar sem "minni spámenn" íslenska liðsins fengu að spreyta sig og auka þannig möguleika sína á að komast í lokahópinn. Enn eru þó áætlaðir fimm æfingaleikir í viðbót og nú er loksins búið að negla þá alla niður með andstæðingum og leikdögum. Þessir leikir eru eftirfarandi:

31. janúar, Bandaríkin - Ísland
24. mars, Danmörk - Ísland
29. mars, Grikkland - Ísland
1. júní, Noregur - Ísland
6. júní, Ísland - Liechtenstein

Samkvæmt þessu fær landsliðið því einn kærkominn kveðjuleik á heimavelli stuttu fyrir EM og andstæðingarnir á Laugardalsvellinum það mánudagskvöld verður stjörnum prýtt lið Liechtenstein. Kannski ekki öflugasti mótherjinn en sennilega er leikurinn helst hugsaður sem létt æfing þar sem möguleiki á stórsigri gæti aukið sjálfstraust liðsins áður en til Frakklands verður haldið. Þetta er þekkt undirbúningsaðferð hjá bestu landsliðum Evrópu rétt fyrir lokakeppni EM og HM til að byggja upp sjálfstraust. Alla vega verður frekar óvenjulegt að sjá a.m.k. 10.000 áhorfendur á Laugardalsvelli gegn Liechtenstein!

Hinir fjórir andstæðingar Íslands fyrir EM teljast allir vera alvöru landslið þótt þeir séu ekki endilega mjög ofarlega á Heimslistanum. Bandaríkjamenn eru 32. sæti listans, Grikkir í 41., Danir í 42 og Norðmenn í 54. sæti. Ísland er í því 36. en Liechtenstein eru í 165. sæti Heimslistans.


Þessir æfinga- eða vináttuleikir eru ekki endilega mjög áhugaverðir, fyrir utan það að vera mikilvægur undirbúningur fyrir mótið, en reyndar verður að viðurkennast að leikurinn við Danmörku gæti orðið athyglisverður. Það verður að segjast eins og er að ekki hafa væntingarnar verið miklar gegn Dönum í gegnum tíðina þó stundum hafi þær bjartsýnisraddir heyrst að nú sé loksins komið að því að sigra þá. Það hefur þó aldrei gerst. Þessar þjóðir hafa mæst 23svar sinnum á knattspyrnuvellinum frá því að Íslendingar spiluðu sinn fyrsta landsleik á Melavellinum í júlí árið 1946 en þá sigruðu Danir einmitt með þremur mörkum gegn engu. Fjórum sinnum hefur okkur tekist að ná jafntefli gegn þeim (þrír þeirra fóru 0-0) en versta tapið er auðvitað hið nafntogaða 14-2 tap, í ansi ójöfnum leik, á Idrætsparken í Kaupmannahöfn árið 1967.



Kannski rétt að eiga umfjöllun um þann fræga leik inni.

Samanlögð markatala þjóðanna í innbyrðis viðureignum er 13-71 Dönum í hag og að meðaltali höfum við því fengið á okkur rúmlega þrjú mörk í leik gegn þeim. Síðasta markið sem Ísland skoraði gegn Danmörku var á Laugardalsvelli í september árið 2000 og síðan hafa þjóðirnar mæst fimm sinnum án þess að Ísland hafi skorað mark eða í heilar 530 mínútur. Á sama tíma hafa Danirnir skorað 16 mörk hjá okkur. Eyjólfur Sverrisson skoraði sem sagt síðasta markið (árið 2000) sem Ísland skoraði á móti Dönum en næsta mark þar á undan skoraði Matthías Hallgrímsson í október árið 1974!

Best að rifja upp fáeina Danaleiki til viðbótar...

Ísland og Danmörk hófu að mætast á knattspyrnuvellinum á nokkurra ára fresti eftir fyrstu viðureign þjóðanna í Reykjavík árið 1946. Iðulega sigraði danska liðið tiltölulega örugglega en reynsluleysi Íslands (sem aðeins spilaði einn til tvo leiki á ári í mesta lagi á þessum árum) og frumstæðar áhugamannaaðstæður komu í veg fyrir framfarir.


Þriðjudaginn 18. ágúst árið 1959 mættust þjóðirnar á Idrætsparken, í sinni sjöundu viðureign, að viðstöddum rúmlega 26.000 áhorfendum og þar kom íslenska liðið nokkuð á óvart. Leiknum lauk með jafntefli 1-1 en Skagamaðurinn Sveinn Teitsson kom Íslandi yfir eftir um hálftíma leik með viðstöðulausu skoti eftir sendingu frá Þórólfi Beck. Danska liðið jafnaði metin þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum en þar var að verki Henning Enoksen eftir mistök í íslensku vörninni. Annars var danska liðið töluvert betra í þessum leik en baráttumikill varnarleikur Íslands og markvarsla Helga Daníelssonar komu í veg fyrir tap.


Íslenska liðið var þannig skipað: Helgi Daníelsson, Hreiðar Ársælsson, Árni Njálsson, Garðar Árnason, Hörður Felixson, Sveinn Teitsson, Örn Steinsen, Ríkharður Jónsson, Þórólfur Beck, Sveinn Jónsson og Þórður Jónsson.



Og fleiri Danaleikir...

Árið 1972 mættust þjóðirnar á Laugardalsvellinum, nánar tiltekið mánudaginn 3. júlí, og slæmur varnarleikur íslenska liðsins var aðall þessa leiks. Reyndar verður að segjast eins og er að liðið leit alveg þokkalega út í fyrri hálfleiknum og sjaldan hefur íslenska landsliðið haft úr jafn miklu að moða gegn Dönum í einum hálfleik.



Sú hátíðlega stund þegar þjóðsöngvar landanna voru fluttir í upphafi hans breyttist reyndar í hálfgerðan skrípaleik á nokkrum sekúndum. Knattspyrnusambandið hafði, á einhvern hátt, náð að klúðra þessari heilögu athöfn með afskaplega einkennilegri útgáfu af þjóðsöng dönsku þjóðarinnar en aldrei þessu vant voru þjóðsöngvar þjóðanna leiknir af hljómplötum. Heimildum ber reyndar ekki alveg saman um hvernig klúðrið æxlaðist en einhvers staðar var talað um að hraði danska þjóðsöngsins hefði aukist um helming í miðjum klíðum. Í öðrum heimildum er minnst á einhverja jazz-útgáfu eða jafnvel dægurlag eða að syrpa af sjómannalögum hefði verið spiluð undir vandræðalegum augngotum um 9000 áhorfenda. Enn aðrar sagnir herma að partur úr 9. sinfóníu Beethovens hafi fengið að hljóma um Laugardalinn í stað Der er et yndigt land.



Alla vega... Leikurinn byrjaði með miklu fjöri á báða bóga og þegar Jack Hansen skoraði fyrsta markið eftir 23 mínútur, með diggri aðstoð íslensku varnarinnar, hafði íslenska liðið þegar fengið tvö dauðafæri auk annara ágætis tækifæra. Hermann Gunnarsson var í aðalhlutverki í sókninni en gekk ekki heill til skógar og þurfti að yfirgefa völlinn snemma leiks. Stuttu eftir danska markið jafnaði Guðgeir Leifsson metið með einhvers konar óviljamarki og eftir rúman hálftíma komst Ísland yfir með marki Eyleifs Hafsteinssonar. Allt leit þetta bara vel út á þeim tíma en danska liðið náði þó að jafna metin strax 2-2 með marki nýliðans Allan Simonsen. Og þannig var staðan í leikhléi.



Á fyrstu tíu mínútum seinni hálfleiksins fór hins vegar gjafmildi íslensku varnarmannanna upp úr öllu valdi og þeir Kjeld Bæk og Allan Simonsen þökkuðu fyrir sig með sitt hvoru markinu. Eftir það átti íslenska liðið enga möguleika og Heino Hansen bætti við fimmta markinu nokkrum mínútum fyrir leikslok og enn voru varnarmenn Íslendinga sofandi þó að þeir gæfu ekki Dönunum boltann beint í það skiptið. Fjórum af fimm mörkum danska liðsins mátti því skrifa beint á íslensku varnarmennina en þó var Sigurður Dagsson markvörður líklega besti maður liðsins.

Allan Simonsen skoraði því tvö mörk þarna í sínum fyrsta landsleik og fékk mikið hrós en hann átti seinna eftir að verða kjörinn knattspyrnumaður Evrópu. Annar nýliði, hinn 16 ára gamli Ásgeir Sigurvinsson, kom inn á sem varamaður hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik og stóð sig mjög vel. En annars var liðið þannig skipað: Sigurður Dagsson, Jóhannes Atlason, Ólafur Sigurvinsson, Einar Gunnarsson, Guðni Kjartansson,Marteinn Geirsson, Guðgeir Leifsson, Eyleifur Hafsteinsson, Teitur Þórðarson, Hermann Gunnarsson og Elmar Geirsson en inn á sem varamenn komu Eyjamennirnir Ásgeir Sigurvinsson og Tómas Pálsson.

Og einn Danaleikur í viðbót...

Þjóðirnar mættust á Laugardalsvellinum, í blíðskaparveðri að viðstöddum rúmlega 8000 áhorfendum, þann 28. júní árið 1978 og þar fengu Íslendingar gott tækifæri til að sigra lélegt lið Dana. Það tókst þó ekki og liðin skildu jöfn í frekar leiðinlegum knattspyrnuleik án þess að skora. Pétur Pétursson spilaði þarna sinn fyrsta landsleik og var af mörgum talinn besti maður vallarins en hann fékk t.a.m. algjört dauðafæri nokkrum mínútum fyrir leikslok sem hann náði þó ekki að klára. Teitur Þórðarson og Atli Eðvaldsson fengu einnig báðir ágætis færi sem ekki nýttust. Danirnir skoruðu reyndar mark í leiknum sem dæmt var af vegna rangstöðu en tekið var sérstaklega fram í öllum fjölmiðlum að línuvörðurinn hefði verið með hugann við eitthvað allt annað. Skoski dómarinn dæmdi markið af upp á sitt einsdæmi en allir á vellinum sáu að Daninn var langt fyrir innan.



Árni Stefánsson markvörður lét hafa eftir sér í leikslok að hann hefði aldrei haft eins lítið að gera í einum landsleik og flestir voru á þeirri skoðun að auðveldur sigur hefði unnist ef Ásgeir Sigurvinsson hefði átt heimangengt.




Danska liðið þótti ekki gott í þessum leik og einhverjum þóttu þeir grófir og tuðgjarnir. Þó voru í því leikmenn, sem voru að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu og áttu heldur betur eftir að slá í gegn. Frank Arnesen, Sören Lerby og Preben Elkjær Larsen gerðu það virkilega gott með Dönum seinna á sínum ferli og stóðu sig seinna frábærlega með Dönum bæði á Lokakeppnum EM og HM. Sören Lerby þótti bestur dönsku leikmannanna í þessum leik.



Annars var íslenska liðið þannig skipað í þessum leik: Árni Stefánsson, Gísli Torfason, Árni Sveinsson, Jón Pétursson, Jóhannes Eðvaldsson, Karl Þórðarson, Janus Guðlaugsson, Atli Eðvaldsson, Teitur Þórðarson, Guðmundur Þorbjörnsson og Pétur Pétursson. Hörður Hilmarsson kom inn á sem varamaður en á bekknum var einnig rúmlega 17 ára gutti sem hét Arnór Guðjohnsen en hann fékk ekki tækifæri í þessum leik.


Ísland og Danmörk mættust síðast á knattspyrnuvellinum þann 4. júní árið 2011 í undankeppni EM 2012 á Laugardalsvellinum en þetta var svolítið áður en hinn frægi uppgangur landsliðsins hófst. Lars og Heimir tóku ekki við liðinu fyrr en í ársbyrjun 2012 en nokkrir af eldri leikmönnum liðsins í dag léku þennan leik og almennt voru menn lítið spenntir fyrir íslenska liðinu á þessum tíma. Leikurinn fór 0-2 fyrir Danina en fyrri leikinn á Parken unnu þeir einnig en þá með einu marki gegn engu. Þjóðirnar mættust einnig í undankeppni EM 2008 og þá sigruðu Danir 3-0 á Parken og 0-2 í Laugardalnum. Næsti leikur þar á undan hafði tapast 6-0 þannig að almennt virðist ekki hafa verið mikið tilefni til bjartsýni nú seinni ár.

En á Skírdag vorið 2016 er tækifæri til breytinga. Danmörk er andstæðingur sem íslenskt áhugafólk um knattspyrnu hefur látið sig dreyma um að vinna í áratugi en aldrei tekist. Gamla herraþjóðin hefur haft tögl og hagldir í viðureignum þjóðanna frá upphafi og þrátt fyrir að oft hafi væntingar um annað, eru þær jafnan skotnar niður með skelli. Í því felst líklega helst þessi rómantík sem fylgir Danaleikjunum.

Það reiknar auðvitað enginn með að Ísland sé að fara að bæta mikið úr markatölunni 13-71 í þessum eina leik og ekki breytist tölfræðin (4 jafntefli og 19 töp) neitt verulega þó Íslandi tækist loksins að sigra einn leik gegn þeim. En hins vegar væri það afskaplega gott og gaman fyrir þjóðarsálina að fá eins og einn sigur - þó það væri ekki nema 1-0. 

Eða... kannski er þetta bara enn einn vonbrigðaleikurinn gegn Dönum þegar væntingarnar eru sem mestar...

En... ÁFRAM ÍSLAND!

Tuesday, December 15, 2015

96. EM VEISLA ÍSLANDS HEFST EFTIR 181 DAG

Þá er 12. desember liðinn og því loksins orðið ljóst hvernig EM veislu Íslendinga verður háttað næsta sumar. Portúgal, Austurríki, Ungverjaland og Ísland koma til með að berjast um þau stig sem í boði verða í F-riðli EM 2016 og líklega eru flestir bara ágætlega sáttir með þá niðurstöðu. Margir segja að um algjöran draumariðil sé að ræða og nánast sé aðeins formsatriði að komast í 16 liða úrslitin en eigum við ekki aðeins að róa okkur niður í þeim væntingum? Sjálfsagt er raunhæfast að álykta að íslenska liðið gæti endað með 0 til 3 stig í riðlinum en allt umfram það væri líklega plús. Jafntefli eða sigur væri hugsanlega möguleiki gegn Ungverjum, líklegast eru tap eða jafntefli eðlileg gegn Austurríki og allt annað en tap er fjarlægur draumur gegn Ronaldo.


Við erum enn langminnsta þjóðin sem komist hefur á EM og liðið hefur hvorki reynslu né styrk til að hafa rétt á miklum væntingum. Við megum ekki falla í þá hrokagildru að segjast ætla að vinna þennan riðil. Engar af hinum þjóðunum þremur; Portúgal, Austurríki eða Ungverjaland hafa gefið það út að þær séu eitthvað betri en aðrar eða að þær ætli að vinna þennan riðil. Þar tala allir um erfiðan riðil og af virðingu um andstæðingana (líka Íslendinga) þar sem enginn mótherji er talinn auðveldur. Það er bara þannig og því er enn langt þar til við getum látið okkur dreyma um 16 liða úrslit á EM.

Gaman að segja þó frá því að nákvæmlega þessar þrjár þjóðir voru efstar á óskalista undirritaðs eftir að ljóst varð hvernig styrkleikaflokkarnir röðuðust en sá listi var valinn með tilliti til hugsanlegs möguleika á að hala inn einhverjum stigum. Óskariðillinn var að sjálfsögðu sendur í giskkeppni sem Vífilfell og Fótbolti.net stóðu fyrir og því má reikna með að jólabirgðir af kókverðlaunum verði komin hér í hús fljótlega.

En leikir Íslands á EM 2016 verða því sem hér segir:
  • 14. júní. Ísland – Portúgal (Stade Geoffroy-Guichard, Saint Étienne). Fyrsti leikur Íslands í lokakeppni Evrópumóts landsliða frá upphafi er gegn Ronaldo og félögum. Hann hefst klukkan 21:00 þann 14. júní og því má reikna með að ekki verði margir á ferðinni það þriðjudagskvöld.
  • 18. júní. Ísland – Ungverjaland (Stade Vélodrome, Marseille). Þessi leikur fer fram laugardaginn 18. júní klukkan 18:00 og sjálfsagt verða þeir fáu Íslendingar sem ekki ætla til Frakklands sjóðheitir á hápunkti þessarar kærkomnu þriggja daga helgar. 
  • 22. júní. Ísland – Austurríki (Stade de France, Saint-Denis). Miðvikudaginn 22. júní fer svo fram lokaleikur Íslands í riðlinum gegn Austurríkismönnum og hann hefst í kringum kvöldmatarleytið klukkan 18:00. Tilvalið að panta sér pítsu eins og reyndar líka á öllum öðrum leikdögum EM 2016.

Hægt og stígandi nálgast því EM 2016 og fjölmiðlar um alla Evrópu eru löngu byrjaðir að kynna til sögunnar þær þjóðir sem þar munu mætast og gera ýmsar úttektir á þeim. Íslenskir fjölmiðlar eru þar engin undantekning. Landslið okkar er auðvitað með í fyrsta sinn og allir hreinlega að rifna af stolti og hamingju yfir þeim áfanga að vera loksins í keppni á meðal bestu landsliða Evrópu. Enda er það svo að margir erlendir fjölmiðlar hafa lýst yfir undrun sinni á árangri liðsins og því verður eiginlega ekki hjá því komist að hégómagirni landans sé eilítið kitlað á köflum. Það er alltaf gaman að heyra hrós en minnum samt á að slaka á væntingunum.

The Guardian hefur til dæmis í, sinni úttekt, metið styrkleika allra liða mótsins og telja gestgjafa Frakka sigurstranglegasta lið keppninnar en Spánn, Þýskaland, Belgía, Ítalía og England koma þar á eftir að áliti fréttamanna blaðsins. Alls eru 24 þjóðir sem taka þátt í þessari lokakeppni EM og blaðamenn the Guardian meta styrkleika Íslands til að skila liðinu í 13. sætið. Íslenska liðið er þar metið sterkara en til dæmis lið Wales, Rússlands, Sviss, Slóvakíu og Svíþjóðar. Í greininni er liðinu einnig hrósað í hástert en ef tekið er mið af hinum liðunum í riðlinum þá telja þeir Guardian menn að Portúgal lendi í 8. sætinu, Austurríki í því 10. og að Ungverjaland endi í 22. sæti.

BBC hefur einnig birt sína úttekt og þar er íslenska liðinu einnig hrósað auk þess sem nefndar eru helstu ástæður hins góða gengis Íslands á undanförnum árum. Smæð landsins er auðvitað nefnd og miðillinn telur íslenska liðið eiga nokkuð góða möguleika á að komast upp úr riðlinum þótt ekki sé liðið sett á neitt sérstakt sæti.

Það verður gaman að halda áfram að fylgjast með undirbúningi landsliðsins á næstu mánuðum en nú eru aðeins 181 dagur þar til okkar veisla hefst.

ÁFRAM ÍSLAND! 

Tuesday, October 6, 2015

95. ÍSLAND Á EM!

Orðið ansi langt síðan eitthvað hefur verið sett hér inn en rétt að bæta úr því...

Aðalmálið þessa dagana er auðvitað hið frábæra afrek íslenska landsliðsins í knattspyrnu en eins og væntanlega hvert einasta íslenska mannsbarn veit, þá hefur liðið náð að tryggja sér sæti í lokakeppni Evrópumóts landsliða í Frakklandi næsta sumar. Reyndar eru enn tveir leikir eftir í riðlinum, heimaleikur gegn Lettum og útileikur við Tyrki í kringum næstu helgi og eina takmarkið sem eftir er snýst um að ná efsta sætinu í riðlinum. Svo öruggt hefur liðið verið í þessum erfiða riðli að sætið á lokakeppnina var nánast orðið gulltryggt þegar enn voru þrír leikir eftir. Árangurinn er því augljóslega engin heppni og frammistaða liðsins er fullkomlega verðskulduð eins og staðan í riðlinum sýnir. Ísland var aðeins þriðja liðið (fyrir utan gestgjafa Frakka) til að tryggja sér sæti á EM en England og Tékkland höfðu áður tryggt sér sín sæti - Tékkar reyndar eingöngu vegna þess að þeirra leikur í riðlinum, á móti Lettum, var spilaður tveimur tímum fyrr. 

Þegar undirritaður var að byrja að fylgjast með fótbolta sem barn, á árunum í kringum 1979 - 80, var jafnan vitnað í hinn stórkostlega árangur íslenska landsliðsins þegar Austur Þjóðverjar voru lagðir að velli í Laugardalnum árið 1975. Þetta var í undankeppni EM og litla Ísland hafði fram að því ekki verið að gera neinar rósir í landsleikjum sínum.


Fram til þess tíma, og reyndar nokkuð fram á níunda áratug síðustu aldar, var Ísland ávallt sett í flokk með smæstu landsliðum álfunnar og stóru þjóðunum þótti það jafnvel oft á tíðum utan sinnar virðingar að þurfa að senda lið sín til keppni á móti þessum smáliðum. Ekki var óalgengt að lokaúrslit úr þessum leikjum væru á bilinu 6 til 8-0 og jafnvel enn hærri tölur sáust. 12-13 mörk komu alveg í allra verstu tilfellunum hjá sumum af þessum minnstu landsliðum. Malta, Luxemborg, Kýpur, Ísrael, Albanía og svo seinna Liechtenstein voru ætíð á sömu slóðum og Ísland en landslið Færeyinga, San Marínó og Andorra komu nokkru síðar inn í þann hóp.

Snemma á níunda áratugnum fóru síðan að týnast inn ein og ein skemmtileg úrslit, hjá landsliðinu, enda voru íslenskir knattspyrnumenn smám saman að fá tækifæri til að gerast atvinnumenn í sinni grein. Með aukinni reynslu leikmanna sem spiluðu hjá liðum í Vestur Þýskalandi, Belgíu, Hollandi og Frakklandi batnaði árangur landsliðsins til muna þó enn væri langt í land.



2-2 jafntefli gegn Wales á útivelli árið 1981 þóttu frábær úrslit og alveg sambærileg við sigurinn góða á Austur Þjóðverjum. Síðan kom sigur gegn Wales mönnunum hér heima þremur árum seinna. Ágætir leikir gegn Spánverjum, Frökkum og Sovétmönnum á næstu árum báru vitni um framför en enn komu slæmir skellir inn á milli. Stærri þjóðirnar fóru þó að taka Ísland alvarlegar en áður og margar þeirra fóru jafnvel að lenda í vandræðum ef Ísland átti góðan dag. Góður sigur á heimavelli gegn Spánverjum vannst árið 1991, jafntefli við nýbakaða heimsmeistara Frakka árið 1998 og sigur á Ítölum í vináttuleik að viðstöddum rúmlega 20.000 manns á Laugardalsvellinum árið 2004.



Heilt yfir hefur Ísland því siglt nokkuð lygnan sjó hvað árangur varðar síðastliðin 25-30 ár. Fín úrslit inn á milli en einnig slæmir skellir. Liðið hefur rokkað upp og niður heimslista FIFA, staðið sig vel á köflum og verið á meðal 40 bestu þegar best hefur gengið en einnig um 100 sætum neðar. Botninum var líklega náð með 0-3 tapi fyrir Lichtenstein í október árið 2007.

Í það minnsta hafa fáir látið sig dreyma um að þessi fámenna þjóð ætti nokkurn tímann eftir að komast á stórmót. Þegar ég sjálfur var að byrja að fylgjast með landsliðinu var það ekki einu sinni í umræðunni að Ísland gæti komist á lokamót HM eða EM. Ég man þegar ég sá Ísland vinna Wales 1-0 í september 1984 í fyrsta leik sínum í riðlinum og hugsaði með mér að liðið væri með fullt hús stiga. En aldrei náðu draumarnir lengra en að ná einu og einu stigi gegn betri liðunum. Annað var hreinlega ekki einu sinni rætt. Upp úr 1990 fór maður fyrst að velta fyrir sér þessum möguleika af einhverri alvöru en aldrei náðu þær pælingarnar lengra en að markmiðið næðist hugsanlega á næstu 30-40 árum. Síðan gleymdust þær pælingar í einhver ár eða áratugi. Fyrir HM 2014 rifjuðust þessar hugmyndir upp, þegar Ísland komst í umspilið gegn Króatíu og var millimetrum frá drauminum en núna er loksins virkilega komið að því.


Árangur landsliðsins á síðustu tveimur til þremur árum er búinn að kollvarpa öllum þeim viðmiðum sem hinn almenni, skynsami íslenski knattspyrnuáhugamaður hafði haft rétt á fram til þessa. Reyndar má ekki taka allt áhugafólk um íslenska knattspyrnu sér til fyrirmyndar, því að á undanförnum tveimur til þremur áratugum hafa skapast aðstæður (með einstaka góðum úrslitum landsliðsins) þar sem væntingarnar og kröfur eru keyrðar upp úr öllu hófi og hinn dæmigerður Íslendingur hefur átt auðveldara að sjá hlutina með augum milljónaborgarans. Við þekkjum einmitt öll kröfurnar til handboltalandsliðsins okkar og Eurovision keppnarinnar. Við erum best í heimi og blablabla... Þá hefur breytt fjölmiðlaumhverfi átt nokkra sök á þessum himinháa væntingastuðli meirihluta þjóðarinnar og einstaka íþróttafjölmiðlamenn eru duglegir að deila út brengluðum skilaboðum með því valdi sem þeir hafa yfir að ráða. Fólk hefur jafnvel verið hundfúlt að vinna ekki stórar eða meðalstórar knattspyrnuþjóðir eins og Þýskaland, Svíþjóð, Portúgal, Danmörk, Skotland, Rússland eða Króatíu. Allt eru þetta þjóðir sem hafa verið langt fyrir ofan Ísland í gegnum tíðina á styrkleikalistanum og væntingar og kröfur því langt umfram skynsamlegra marka.


Núna loksins eigum við fótboltalandslið sem getur þetta og hægt er að vera með væntingar til. En eitt er að vera með væntingar og annað er að gera kröfur. Það er staðreynd að Ísland er komið á EM og þrátt fyrir að vera komin á lokamót í fyrsta skipti höfum við engan rétt á að gera kröfur. Til þess erum við bæði of reynslulítil og of lítil til að geta verið með einhvern hroka. Þegar við verðum búin að tryggja okkur sæti á hverju HM og EM í tíu skipti í röð, getum við farið að gera smá kröfur. Byrjum á því að þakka fyrir að vera á EM og njótum þess. Hver einasti áhugamaður um íslenska knattspyrnu getur ákveðið sjálfur hvaða væntingar hann hefur um árangur liðsins en umfram allt gleðjumst yfir árangrinum og njótum hans uns yfir lýkur.

ÁFRAM ÍSLAND!

Tuesday, July 8, 2014

94. N1-MÓTIÐ Á AKUREYRI

Búið að vera mikið að gera hjá okkur að undanförnu við að fylgjast með HM í fótbolta en þó ekki svo mikið að við gleymdum að skella okkur á N1 mótið víðfræga á Akureyri. Tumi er nú á seinna ári í 5. flokki og því síðasti séns fyrir hann að skella sér til Akureyris en hann stóð sig alveg feykilega vel líkt og á sama móti í fyrra.

Hann spilaði með F-liði Þróttar í frönsku deildinni á áðurnefndu móti og óhætt er að segja að lið hans hafi staðið sig vel þar. Veðrið var reyndar ekki alveg eins og best verður á kosið en eftir fjögurra daga vosbúð og kulda norðan heiða, spilaði liðið um þriðja sætið (af 18 liðum) í frönsku deildinni og vann þann leik.
 
Mótið byrjaði þó ekki vel hjá Tuma og félögum hans en fyrsti leikurinn á miðvikudeginum var á móti Val og sá leikur tapaðist með þremur mörkum gegn einu. Eftir á að hyggja má draga líkur að því að sá leikur hafi tapast af þeirri einu ástæðu að hópurinn var að hittast og spila sem lið í allra fyrsta skipti. Leikmenn liðsins voru ekki búnir að læra inn á hvern annan og hvernig best væri að pressa andstæðingana þannig að þær næðu ekki að sækja almennilega. En það lagaðist strax í næsta leik sem var á móti ÍBV en þar sigruðu Þróttarar með fimm mörkum gegn einu.


Fimmtudagurinn byrjaði á góðum 3-1 sigri á Njarðvík, næst var komið að 4-2 sigri á Völsungi frá Húsavík og deginum lauk með 5-1 sigri á liði Breiðabliks 1. Þarna var liðið komið á góðan skrið í frönsku deildinni og enn þrír leikir eftir í riðlakeppninni.

Á föstudeginum var fyrsti leikurinn gegn Dalvík/KV og hann vannst með þremur mörkum gegn engu. Þá var komið að því að spila gegn FH og enn unnu okkar menn og nú með sex mörkum gegn tveimur. Síðasti leikur riðlakeppninnar var svo gegn HK og hann vannst með tveimur mörkum gegn einu. Það var því ljóst að okkar menn myndu spila til úrslita gegn ÍR um 3. sætið í frönsku deildinni á laugardeginum. Valur og Þróttur enduðu reyndar bæði með 21 stig í efsta sæti riðilsins en Valsmenn voru með betri markatölu og léku því úrslitaleikinn.

Eins og áður sagði var veðrið ekkert sérlega spennandi mótsdagana en á laugardagsmorguninn var ekki nema 6 stiga hiti, grenjandi rigning og fjallstopparnir í nágrenninu voru hvorki meira né minna en snjóhvítir. Grasvellirnir voru orðnir svo blautir og tættir að ákveðið var að færa alla leiki laugardagsins yfir á gervigrasið.


Leikurinn um 3. sætið fór vel af stað hjá okkar mönnum og eftir að staðan var orðin 4-0 í hálfleik reiknuðu líklega flestir með að afgangurinn af leiknum yrði aðeins formsatriði. En það var öðru nær. ÍR minnkaði muninn í 4-3 og þannig endaði síðan leikurinn. F-lið Þróttar unnu því til bronsverðlauna í frönsku deildinni og náðu í raun besta árangri liða Þróttar á öllu N1-mótinu.


Hér er liðið en þeir eru, frá efri röð til vinstri: Kristófer, Eyjólfur, Steinar, Jóel, Jens Ingi og Tumi. Neðri röð frá vinstri: Anton, Aggi, Jónas og Guðjón.

Liðið spilaði því 9 leiki og tapaði aðeins fyrsta leiknum gegn Val, eftir það komu 8 sigurleikir í röð. Samtals skoraði liðið 33 mörk og fékk á sig 14 en Eyjólfur var duglegastur að skora og setti 14 mörk.

Tumi stóð sig líka virkilega vel og skoraði sjö mörk en auk þess átti hann tvö sláarskot, lagði upp nokkur mörk og átti næstsíðustu snertinguna í tveimur sjálfsmörkum andstæðinganna. Ég vil reyndar meina að annað þeirra (beint úr hornspyrnu) hefði farið inn án aðstoðar varnarmanns hins liðsins. Við mamma hans vorum virkilega stolt af kútnum og sjálfur má hann vel við una.

Systir Tuma, Móey, gisti með okkur mömmu hans á hótelinu á meðan á mótinu stóð og af því tilefni fá þau hér vídeó af sér. Það er samt eiginlega aðallega fyrir ömmu þeirra í Sviss.
 
 

Saturday, June 21, 2014

92. LEIKMENN TOTTENHAM Á HM

Nú eru liðnar fyrstu tvær vikurnar af HM 2014 og langt liðið á aðra umferð riðlakeppninnar, þannig að mótið er búið að fá að rúlla vel af stað. Keppnin fer stórvel í gang og töluvert meira hefur verið skorað af mörkum þessa fyrstu daga heldur en á fyrri mótum. Mótið er í raun og veru alveg stórskemmtilegt og hefur upp á að bjóða allt það sem knattspyrnuáhugamenn vilja sjá.


Tók eftir því þegar enski landsliðshópurinn var valinn fyrir Heimsmeistarakeppnina að ekki einn einasti leikmaður Tottenham var í hópnum og hugsaði reyndar með mér að ég minntist þess ekki að hafa upplifað slíkt áður. Enskir leikmenn Spurs hafa að jafnaði verið þetta 2-4 í hverri stórkeppni á undanförnum áratugum en þeir aðilar sem helst komu til greina fyrir þetta mót voru ýmist meiddir eða þóttu ekki hafa sýnt nægilega góða frammistöðu undanfarna mánuði. Það er líka bara fínt. Enska liðið er engan veginn sannfærandi og þessir tilteknu leikmenn Tottenham fá því kærkomið og gott sumarfrí í staðinn.


En það eru fleiri landsliðsmenn Tottenham á ferðinni heldur en bara hjá því enska. Okkur reiknast svo til að í heildina séu þeir líklega sjö talsins en einnig eru þó nokkrir fyrrverandi leikmenn liðsins á mótinu. Belgíska liðið á flesta fulltrúa Spurs á HM að þessu sinni eða þrjá talsins. Þetta eru þeir Jan Vertonghen, Mousa Dembele og Nacer Chadli, Paulinho er fulltrúi liðsins hjá Brasilíumönnum, Benoit Assou-Ekotto er hjá Kamerún, Hugo Lloris Frakklandi og Nabil Bentaleb spilar fyrir Alsír.

Af fyrrverandi leikmönnum liðsins má nefna að misjafnlega gengur þeim nú á HM. Cliff Dempsey og Giovani dos Santos hafa staðið sig vel með sínum landsliðum á meðan að Wilson Palacios hefur verið að sýna frekar lítið þroskuð tilþrif. Króatarnir og Íslandsvinirnir Modric, Corluca og Pletikosa hafa allir spilað lygnan sjó með sínu landsliði. Kevin-Prince Boateng er þarna einhvers staðar, Hélder Postiga og meira að segja Didier Zokora er enn að spila. Alls eru þetta 16 núverandi og fyrrverandi leikmenn Tottenham sem eru að spila á HM. Það gæti alveg verið verra.

Saturday, June 14, 2014

91. MEIRA AF FLOTTUM AUGLÝSINGUM

Veislan er byrjuð og frábærar fótboltatengdar auglýsingar streyma fram á sjónarsviðið. Hér er ein ansi flott frá Nike, í anda teiknimyndarinnar um Ratatouille, þar sem margir kunnir knattspyrnumenn sjást í nýju formi. Sumir þeirra eru einmitt í eldlínunni á HM en aðrir því miður ekki. Sjón er sögu ríkari...