Saturday, November 30, 2013

48. PONDUS GÆRDAGSINS

Við verðum eiginlega bara að leyfa kaldhæðnislegum Pondusi, úr Fréttablaði gærdagsins, að fá að njóta sín aðeins hér.
 


Friday, November 29, 2013

47. SPEKINGAR SPÁ Í ENSKA BOLTANN


Og þá er víst komið að leikjum umferðarinnar í enska boltanum en síðast fékk Tumi 6 stig, Helgi 3 og auðvitað var Garðar enn og aftur efstur með 8 stig. Tumi er enn efstur og hefur nú 84 stig, Helgi er með 68 en Garðar hefur 65.
 
Hér eru svo leikir helgarinnar:
 
CARDIFF - ARSENAL
Tumi: 0-3 Giroud skorar eitthvað.
Helgi: 1-4 Ég sé ekki að neitt lið sé að stoppa Ars þessa dagana, Giroud og Ramsey með tvö hvor.
Garðar: 0-2 Þoli auðvitað ekki þetta arsenik lið en Weilsverjarnir eru bara ekkert góðir.
 
TOTTENHAM - MAN UTD
Tumi: 1-1 Steindautt og leiðinlegt jafntefli.
Helgi: 0-2 Bara sorry Garðar en þetta lið þitt getur bara ekkert.
Garðar: 1-1 Er ekki bjartsýnn á góð úrslit um helgina en styð mína menn til hinsta dauðdaga. Held samt að Soldado skori ekki í dag.
 
HULL - LIVERPOOL
Tumi: 0-3 Ég vil bara ekkert segja um þennan leik.
Helgi: 0-3 Suares 2 og Coutinho 1.
Garðar: 0-2 Hull er arfaslakt fótboltalið en Liverpul eru bara arfar sem bíta
 
CHELSEA - SOUTHAMPTON
Tumi: 2-0 En mamma segir 3-0.
Helgi: 2-1 Sáþþemptingarnir krækja næstum því í stig á Brúnni.
Garðar: 2-1 Dýrlingarnir eru að gefa eftir og vinna ekki bardagann við bláfótunga.
 
MAN CITY - SWANSEA
Tumi: 4-0 Agueroooooooooooo!!!!
Helgi: 6-1 Stefnir í einhvers konar markamet hjá Sjittí.
Garðar: 3-0 City er sennilega besta lið deildarinnar (á eftir Spurs) og álftirnar eiga engan séns nema á stórtapi.
 
EVERTON - STOKE
Tumi: 3-1 Lukaku skorar 2.
Helgi: 1-0 Líklega með afbrigðum leiðinlegur leikur þar sem Distin skorar sigurmarkið með skalla í fyrri hálfleik.
Garðar: 1-0 Nenni ekki að skrifa neitt um þennan leik.

Monday, November 25, 2013

46. GEORGE BEST - 25. NÓVEMBER

Það er kominn 25. nóvember og það þýðir bara auðvitað það að í dag eru liðin 8 ár síðan að Norður Írski knattspyrnusnillingurinn George Best lést, 59 ára að aldri. Tilvalið að hafa mynd af kallinum í tilefni dagsins

 
Hér er hann, ásamt stórvini sínum Elton John, staddur á sínum velmektardögum í Ameríku þar sem hann spilaði til fjölda ára. Sir Elton átti hins vegar fótboltafélagið Watford en spilaði samt aldrei með þeim.

Svo er önnur mynd af þeim hér þar sem þeir virðast vera á leið á grímuball en á báðum myndunum eru þeir reyndar í búningum knattspyrnufélagsins Los Angeles Aztecs sem Elton John átti hlut í.


 
Annars er tilvalið að vitna aðeins í snillinginn Best og um leið benda á sjálfsævisögu hans, Lánsamur, sem kom út á íslensku fyrir nokkrum árum og er alveg stórskemmtileg lesning.

"Ég eyddi miklum peningum í áfengi, hraðskreiða bíla og fagrar konur en mest af aurunum mínum fór þó í eintóma vitleysu."

"Árið 1969 hætti ég að drekka áfengi og stunda kynlíf. Það voru verstu 20 mínúturnar í lífi mínu."




Thursday, November 21, 2013

45. SPEKINGAR SPÁ Í ENSKA BOLTANN

 
Það voru víst engir leikir spilaðir í enska boltanum um síðustu helgi, líkt og glöggir aðdáendur Boltabulls hafa væntanlega tekið eftir, en þá var boðið upp á enn eina landsleikjahelgina sem menn eru einmitt svo afskaplega mishrifnir af. Að þessu sinni voru þó landsmenn allir svo yfirspenntir og límdir við skjáinn að áhorfendatölur komu meira að segja glöggt fram á mælum Orkuveitunnar!

Annars fengu þeir Tumi og Helgi sitt hvor 8 stigin úr leikjum umferðarinnar en Garðar var samt langefstur með 3 stig. Aukaleikirnir tveir gáfu Tuma 4 stig, Helga 3 og Garðari 1. Heildarstaðan hjá sérfræðingunum er því þannig að Tumi er enn efstur og er nú kominn með 78 stig, Helgi hefur 65 og Garðar nartar í hælana á þeim og er með 57 stig. Augljóslega er aðeins tímaspursmál hvenær hann tekur forystuna í leiknum.

En hér koma leikir helgarinnar;

EVERTON - LIVERPOOL
Tumi: 0-2 Sturridge og Suarez með mörkin.
Helgi1-1 Derbyjafntefli.
Garðar: 1-2 Pat Benatar og Buddy Holly með mörkin í derby leiknum.

ARSENAL - SOUTHAMPTON
Tumi: 3-1 Ramsey og Giroud skora fyrir Ars og Özil leggur upp en fyrir Southampton skorar Rickie Lambert.
Helgi: 2-2 Þreyta í landsliðsmönnum Arsenal.
Garðar: 1-0 Þetta er eiginlega soldið erfiður leikur. Ars eru efstir en geta samt ekkert og ég treysti ekki Dýrlingunum fyrir þessu. 

NEWCASTLE - NORWICH
Tumi: 3-0 Leiðinlegur leikur en Loïc Remy með þrennu bara.
Helgi: 3-0 Tiltölulega léttur röndóttur sigur.
Garðar: 2-0 Steindautt og hundleiðinleg bæði liðin.

WEST HAM - CHELSEA
Tumi: 0-3 Oscar og Eto'o alveg meðetta.
Helgi: 1-2 Lundúnskur útisigur.
Garðar: 0-2 Slæmur kafli hjá Abró & félögum en Edrú er kominn í gang.

MAN CITY - TOTTENHAM
Tumi: 2-1 Agüero skorar a.m.k. eitt.
Helgi: 1-1 Þriðja jafnteflið í þessu tippi.
Garðar: 1-0 Líklega best að vera svolítið svartsýnn í dag og enn skorar Soldado.

CARDIFF - MAN UTD
Tumi: 2-1 Ashley Old dýfir sér og fiskar víti sem Rooney skorar úr og Campell með tvennu.
Helgi: 1-2 Rooney með bæði.
Garðar: 1-2 Man jú tekur þetta og rétt sleppa við fall.

Sunday, November 17, 2013

43. 90 MÍNÚTUR Í VIÐBÓT

Þá er víst kominn hálfleikur í umspilsviðureignum Íslands og Króatíu fyrir laust sæti á HM í Brasilíu í sumar og íslenska liðið getur sko alveg vel við unað með stöðuna. 0-0 eru frábær úrslit og þá sérstaklega með það í huga að Króatarnir léku manni fleiri stóran hluta leiksins en sérstaklega er mikilvægt að þeir náðu ekki að skora mark hjá okkur. Íslenska liðið stóð sig frábærlega miðað við aðstæður og stuðningurinn á vellinum var einstakur. Ég held ég hafi aldrei áður heyrt troðfullan Laugardalsvöllinn syngja áður allan þjóðsönginn. Venjulega heyrast bara örfáar hræður taka undir í lok söngsins þegar Ísland þúsund ár hljómar í einfaldasta hlutanum.
 
 
Nú er það eina, sem getur komið í veg fyrir að Ísland komist á HM, er að Króatía vinni heimaleik sinn. Hmmmmm... og það er reyndar töluverðar líkur. En ef staðan er 0-0 eftir venjulega leiktíma í seinni leiknum í Króatíu, þá er Ísland enn inni og þá verður gripið til framlengingar en önnur jafntefli (með mörkum) tryggja það að Strákarnir okkar komast á HM. Hvert einasta mark sem Ísland skorar í seinni leiknum getur orðið dýrmætt því að þá þurfa Króatarnir alltaf að skora einu meira.


Þá er gaman að velta sér aðeins upp úr þeim vangaveltum, sem í gangi voru fyrir umspilið, um gegn hvaða þjóð væri heppilegast að lenda með tilliti til möguleika á að komast á HM. Flestir voru á þeirri skoðun að Íslendingar ættu skárstu möguleikana gegn Grikkjum og einhverjir nefndu einnig Úkraínu sem heppilegan mótherja. Báðar þessar þjóðir unnu hins vegar sína fyrri leiki í umspilinu nokkuð örugglega á heimavelli. Grikkland sigraði Rúmeníu 3-1 á meðan Úkraína vann Frakkland 2-0. Menn voru almennt sáttir við að mæta Króatíu og fegnir að þurfa ekki að mæta Portúgölum en hins vegar er spurning hvort ekki hefði bara verið hentugast að spila við Frakka ef það hefði verið í boði? En eins og staðan er núna í einvíginu getur Ísland vel við unað.
 
 
Fyrirfram hefur verið talað um umspilsleikina sem stærstu og mikilvægustu leiki íslenskrar knattspyrnu til þessa en eftir fyrri leikinn hefur eiginlega alveg gleymst að minnast á að úrslitin séu einnig einhver þau stærstu og bestu sem landsliðið hefur náð. Sigrar gegn Austur Þýskalandi 1975, Wales 1984, Spánverjum 1991, Tékkum 2001, Ítölum 2004 og jafntefli við Wales 1981, Þýskaland 2003 og heimsmeistara Frakka árið 1998 hafa oft verið nefnd sem þau úrslit sem staðið hafa upp úr hjá liðinu í gegnum tíðina. Þetta jafntefli við Króatíu má einnig tvímælalaust setja í sama flokk og ekki síst með mikilvægi hans sem úrslitaleiks í huga. Síðari leikurinn á þriðjudaginn verður mikilvægasti leikur Íslands frá upphafi og vonandi verða úrslit hans einnig þau stærstu í knattspyrnusögu Íslands.

ÁFRAM ÍSLAND!

Monday, November 11, 2013

42. VEÐURBLABLA...

Nú styttist heldur betur í stærstu leiki íslenskrar knattspyrnusögu og almenningur skiptist annars vegar í pirring yfir meintu miðasölusamsæri KSÍ (reyndar fullkomlega réttlætanlega) og hins vegar í djúpstæðar vangaveltur um veður- og vallaraðstæður á Laugardalsvelli þann 15. nóvember næstkomandi. Við Tumi höfum ákveðið að láta KSÍ mafíuna ekki skemma fyrir okkur stemmninguna í kringum leikinn og því ætlum við að skella okkur í veðrið að þessu sinni.

 
Fjölmiðlar voru augljóslega búnir að vera að bíða eftir fyrstu spám, frá þeim norsku veðurvefum sem mest er mark takandi á hér á landi, því strax snemma í síðustu viku voru komnar vangaveltur um stórhríð og Íslandsmet í frosthörkum á leikdag. DV greindi frá því í fyrirsögn að leikurinn væri í uppnámi og fengu jafnvel alvöru veðurfræðing til að rýna í óljósar gervitunglaspár og segja frá því versta sem í boði væri. Notuð voru framandi orð eins og "snjóstormur" og hótanir um 10 stiga frost áttu að vera vísbending um að ísöld hæfist á leikdag. Þetta var að morgni 5. nóvember og því enn heilir tíu dagar í leikinn! Svartsýni Íslendinga er greinilega engum takmörkum sett.

Í dag er hins vegar kominn mánudagur og því aðeins fjórir dagar til stefnu. Það er búið að breiða risastóran tjalddúk yfir Laugardalsvöllinn en dúkurinn var sóttur alla leið til útlanda og með honum fylgdu fjórir starfsmenn sem skiptast á vöktum við að blása heitu lofti undir hann. Þetta á allt saman að vera alveg ægilega fínt og framandi og ekki minnkaði metnaðurinn við það að umsjónarmenn vallarins vítamínbættu grasið og báru við járnskorti. Dúkurinn byrjaði reyndar að blakta eitthvað í rokinu um helgina en hann fór ekki langt. Þökk sé vakthafandi blástursmönnum. Og snefilefnin gerðu Laugardalsvöllinn fagurgrænan um íslenskan hávetur.


Veðurspár eru heldur að skýrast og í augnablikinu má gera ráð fyrir frekar eðlilegu vetrarveðri á leikdag á milli lægða en það hljóðar eitthvað á þá leið að reiknað er með vestan éljagangi, með hita í kringum frostmark. Ekkert sem ætti að koma á óvart þar miðað við árstíma.

En til gamans er ekki svo vitlaust að rýna í lokin aðeins í veður í Reykjavík þann 15. nóvember á undanförnum árum. Myndin hér fyrir neðan er til dæmis frá 15. nóvember árið 2004 og er tekin á Gróttuvellinum á Seltjarnarnesi. Guttarnir þarna virðast ekki vera í miklum erfiðleikum með að spila fótbolta í smá snjó en líklega gerir FIFA aðeins meiri kröfur um vallaraðstæður á föstudaginn.
 

ÁFRAM ÍSLAND!