Nú eru ekki nema tíu dagar þar til sjálf Heimsmeistarakeppnin í fótbolta, stærsta veisla allra sannra knattspyrnuunnenda, hefst en að sjálfsögðu ætlum við Boltabulls-aðilar að fylgjast með henni eftir bestu getu.
Í þessari færslu ætlum við að skoða búninga liðanna í keppninni og rýna aðeins í möguleika landsliðanna með tilliti til smekkvísi, hönnun og litasamsetninga þeirra. 10 af liðunum 32, sem spila í lokakeppni HM, leika í Nike búningum, 9 eru í Adidas og 7 í Puma en hin 6 liðin deila jafnt með sér öðrum merkjum.

Faglegir álitsgjafar síðunnar eru að sjálfsögðu þeir Tumi og Garðar en sérstakt ráðgjafa- og sérfræðiálit, auk kvenlegs innsæis, var í höndum móður Tuma og eiginkonu Garðars, Silke Waelti.
Í A-riðlinum eru búningarnir heilt yfir frekar skrautlegir þó græni liturinn sé þar svolítið áberandi. Silke nefndi einmitt sérstaklega hve treyjurnar væru litríkar og ljótar hver á sinn hátt en almennt er hún hvorki hrifin af gulum eða grænum búningum. Og sá króatíski fannst henni eiginlega bara alveg vonlaus eins og reyndar þeim Tuma og Garðari fannst líka báðum. Tuma finnst hann eiginlega minna alltaf svolítið á dúk úr lautarferð! Annars var hann hrifinn af öllum hinum á meðan Garðari fannst bara sá brasilíski flottur þó hann hafi ekki verið hrifinn af hálsmálinu. Þeim síðarnefnda var líka alveg sérstaklega í nöp við þann kamerúmska, sem Tumi var hins vegar mjög hrifinn af.
B-riðillinn var greinilega auðveldari í meðförum og heilt yfir voru þar fleiri búningar sem álitsgjafarnir voru hrifnir af. Litirnir á búningunum í riðlinum eru allir frekar líkir þannig að líklega munu varabúningar liðanna vera notaðir í öllum leikjum riðilsins. Öll voru þau hrifin af hollenska búningnum og Silke finnst sá spænski aldrei klikka, enda Spánn það landslið sem hún heldur með í öllum keppnum. Hún var hvorki hrifin af þeim chileska né ástralska á meðan bæði Tumi og Garðar voru báðir hrifnir af þeim síðarnefnda. Garðari fannst reyndar allir búningarnir í riðlinu flottir og þá helst vegna einfaldleika síns og þar fannst honum sá ástralski bera af.
Fjölbreytileikinn í litavalinu er áberandi þarna og allir voru með búning Fílabeinsstrandarinnar efst á blaði í C-riðlinum en Tumi var einnig jafn hrifinn af Kólumbíu og Grikklandi. Reyndar fannst Silke sá fílabeinski ekki alveg jafn flottur og á HM 2010 og á sama máli var hún um þann gríska, sem henni fannst hálsmálið skemma svolítið núna. Garðar var ekki hrifinn af þeim gríska. Silke fannst sá guli, kólumbíski ljótur, eins og reyndar líka Garðari, en öllum álitsgjöfum fannst sá japanski ágætur.
Í D-riðlinum eru liðin með mjög hefðbundnum litum í treyjunum sínum, enda sígild landslið þar á ferðinni. Silke var hrifin af öllum búningunum í þessum riðli en fannst sá úrúgvæski samt bera af. Tuma fannst sá líka mjög flottur en hinum búningunum fannst hann ekkert sérstakir. Garðar var mest hrifinn af þeim enska vegna einfaldleika hans og hann var einnig frekar hrifinn af þeim úrúgvæska en fannst hálsmálið svolítið skemma heildarmyndina. Hann var ekki hrifinn af þeim ítalska. Einnig fannst honum Kosta Ríka búningurinn ljótur, enda svolítið í anda íslenska landsliðsins - líta út eins og eitthvað afgangs dót frá 9. áratug síðustu aldar.
E-riðillinn er mjög fjölbreytilegur í litunum en um leið með mjög einföldum búningum. Silke var einmitt á því máli og fannst allir mjög fínir nema sá ekvadorski. Einnig fannst henni hálsmálið á þeim franska aðeins skemma og því var Garðar líka sammála. Honum fannst sá franski samt svolítið töff og minna jafnvel eilítið á íslenska landsliðsbúninginn árið 1976! Garðar var líka mjög hrifinn af bæði svissneska og þeim hondúríska en ekvadorski búningurinn minnti hann fullmikið á Fjölni, Leiftur eða Grindavík og á því ekkert erindi á HM. Tuma fannst sá franski mjög flottur, svissneski fínn en hinir mjög óspennandi og þá sérstaklega hið risastóra H sem hefði alveg má útfæra eitthvað betur.
Liðin í F-riðlinum eru ekkert að eyða mikilli orku í of sterka eða áberandi litadýrð en þó sker Nígería sig svolítið úr. Allir álitsgjafarnir voru mjög hrifnir af argentíska búningnum og Silke fannst þessi riðill allur nokkuð flottur - meira að segja sá nígeríski þó hann væri grænn. Garðari fannst sá argentínski flottasti búningur keppninnar og hann var einnig nokkuð hrifinn af Bosníu-Hersegóviníu. Nígeríski væri bara alveg þokkalegur í hans augum en sá íranski frekar óspennadi. Tuma fannst sá argentínski mjög flottur en restin alveg hryllileg, svo haft sé eftir honum orðrétt.
Hér eru þrír af fjórum búningum frekar keimlíkir og ljóst að varabúningasettin verða líka mikið notuð í G-riðli. Silke fannst sá portúgalski mjög flottur og er alltaf mjög hrifin þegar tveir mismunandi rauðir litir eru saman í búning. Hún var líka hrifin af þeim þýska og fannst tilbreyting að vera með þennan rauða lit í stað sígildu fánalitina. Garðari fannst sá bandaríski eiginlega skárstur hér. Ghana væri fínn ef draslið við hálsinn væri ekki en Þýskaland og Portúgal fannst honum óvenju ófrumlegir þessa keppnina. Tuma fannst Ghana alveg fáránlega flottur en restin aðeins flott!
Og að lokum er það svo H-riðillinn rauðleyti og enn á ný má reikna með að varabúningurinn verði alls ráðandi í leikjum riðilsins. Silke var á þeirri skoðun að allir búningar riðilsins væru mjög flottir en sá Suður Kóreski kannski sístur. Garðari fannst búnigar Alsír og Rússlands nokkuð smekklegir en hinir tveir ósköp venjulegir og litlausir eitthvað. Tumi var hrifnastur af þeim rússneska og belgíska en þeir alsírsku og suður kóresku frekar óspennandi.
Í heildina voru álitsgjafarnir alræmdu með frekar ólíkar hugmyndir um smekkvísi búninga liðanna á Heimsmeistaramótinu og það má auðveldlega sjá á mati hvers riðils fyrir sig eins og sjá má. En oft voru þeir samt líka með svipaðar hugmyndir um smekk og þá kannski sérstaklega með ljótari búningana. Álitsgjafarnir voru einnig beðnir um að nefna sérstaklega þá búninga sem þeir fannst fallegastir og ljótastir í keppninni en einnig völdu þeir best og verst klædda riðilinn. Og þarna sést berlega hversu mismunandi smekkur þeirra var. Af þessu mætti ráða að erfitt yrði að fá heilstæða niðurstöðu um líklega Heimsmeistara með tilliti til fegurðar búninganna.
SILKE
Flottustu: Fílabeinströndin eða Holland
Ljótustu: Mexíkó
Best klæddi riðillinn: D-riðill
Verst klæddi riðillinn: A-riðill
TUMI
Flottustu: Kamerún eða Ghana
Ljótustu: Íran
Best klæddi riðillinn: A-riðill
Verst klæddi riðillinn: F-riðill
GARÐAR
Flottustu: Argentína eða Ástralía
Ljótustu: Kamerún
Best klæddi riðillinn: B-riðill

No comments:
Post a Comment